GLS leiðtogaráðstefnan verður haldin föstudaginn 6. nóvember 2026 á Grand Hótel Reykjavík í salnum Háteigi á 4. hæð.
Ráðstefnutími: kl 9-16:30. Hús opnar kl. 8:20.
Innifalið eru ráðstefnugögn, súpuhlaðborð í hádeginu og kaffiveitingar í 2 kaffihléum.
Tilboðsverð stakra miða í forsölu 16.900 kr. (fullt verð 19.900 kr.). Breytingin frá fyrra ári er að nú er súpuhlaðborð hótelsins innifalið í verðinu!
Við kaup á heilu eða hálfu borði er miðaverð í forsölu 13.900 kr. á hvert sæti (en hækkar í 16.900 kr. þegar forsölu lýkur).
Global Leadership Summit er uppspretta fyrir ferskar hugmyndir, hagnýt skref, þjónandi forystu og hjartnæma uppörvun. Ráðstefnan leitast við að efla þig, vera vettvangur framtíðarsýnar, miðla krafti til umbreytinga, hrinda hindrunum úr vegi.
Hér færðu innsýn í reynslu og innsæi leiðtoga frá heimsklassa fyrirlesurum á stórum skjá og íslenskt efni á sviði. Þú kemur með hópnum þínum, kynnist fólki, og spjallar og skráir hjá þér góðar hugmyndir. Þú munt heyra frá prestum, frumkvöðlum, viðskiptahugsuðum, og síðast en ekki síst sögur frá venjulegu fólki sem tókst á við áskoranir. GLS vill hjálpa þér til betri forystu – hvar sem þú hefur áhrif.
GLS byggir á gildum Jesú Krists, eins merkasta leiðtoga sem uppi hefur verið.
Þetta er GLS!
Staðsetning: Grand Hótel Reykjavík (Háteigur á 4.hæð)